Blogg
24.12.2009
Gleðilega hátíð !
Við gellurnar viljum óska öllum trukkurum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum fyrir innlitin á síðuna og samstarfið á vegum landsins, viljum einnig benda á að nýjar myndir eru komnar inn í ágúst, september, október, nóvember og desember albúmin. Sjáumst hress og kát á nýju ári, megi það innihalda meiri vinnu og verkefni handa okkur öllum !
Kveðja Linda Björk, Sigrún Ingveldur, Rósa Vigdís og Vigdís Sigríður
8.9.2009
Trukkasýning og Trukkakvöld !
Þá er komið að árlegu trukkasýningunni og trukkakvöldi Dóra Tjakks. Við hvetjum alla til að mæta og höfum við heyrt af mikilli þáttöku í sýningunni, þannig að þetta verður bara spennandi ! Þessi flotta auglýsing hjá strákunum segir samt bara allt sem segja þarf. 
Við munum að sjálfsögðu senda fulltrúa á staðinn til að taka myndir af herlegheitunum og munum setja myndir af þessu öllu saman inn sem allra fyrst inní myndaalbúmið. Gangið hægt inn um gleðinnar dyr !